2.6.2010 | 11:25
Kveðja frá kennara
Sif, þú hefur verið að standa þig frábærlega í vetur. Árangurinn er mjög góður og hefur verið gaman að fylgjast með þér í vetur.
Þú ert kurteis, ljúf og með fallegt bros og gott að vera nálægt þér.
Auður Ögmundsdóttir
31.5.2010 | 13:45
Tyrkjarán leikrit
28.5.2010 | 15:51
Fiðrildi
28.5.2010 | 10:25
Gæluverkefni
Ég mátti velja hvað ég vildi fjalla um og ég ákvað að gera glærur um fiðrildi af því að mig langaði að fræðast um þau. Mér fannst gaman að fá að velja verkefni og kynna það fyrir bekknum. Við höfðum 3 vikur til þess að vinna verkefnið heima og við áttum að gera áætlun fyrir hverja viku. Mér fannst ágætt að gera áætlun en það var ekkert betra en að gera ekki áætlun. Það átti síðan að gera skýrslu fyrir hverja viku. Mér fannst gaman að gera heimavinnu sem ég vel sjálf og mér fannst ekkert að því að vera 3 vikur að vinna það. Mér fannst skemmtilegt að vinna verkefni um fiðrildi og ég er ánægð með það.
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 15:35 | Slóð | Facebook
28.5.2010 | 09:07
Danska
Þetta er fyrsta árið mitt í dönsku. Ég hef lært mjög margt.
Við höfum lesið texta á dönsku, búið til matseðil, spil og margt fleira.
Mér hefur gengið vel í dönsku. t.d í prófunum og að vinna verkefnin
Mér hefur fundist skemmtilegt í dönsku og það er gaman að læra nýtt tungumál.
26.5.2010 | 15:47
Anne Frank
í ensku var ég að læra um Önnu Frank
Hún var stelpa sem bjó í Þýskalandi og skrifaði í dagbók þegar hún var í felum út af stríðinu þegar Hitler stjórnaði , Anna var gyðingur. Fjölskildan hennar fannst og það var farið með þau í útrýmingarbúðir. Þar dóu þau nema pabbi önnu.Hann fann dagbókina hennar og gaf hana út.
Við hlustuðum á dagbókina hennar og gerðu myndband í photo story um ævi hennar.
Mér fannst gaman að læra um hana og núna veit ég mikið um hana.
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 16:02 | Slóð | Facebook
19.5.2010 | 16:03
Fuglar
Í náttúrufræði hef ég verið að læra um plöntur, vísindi , mannslíkamann og svo lærði ég um fugla.
það átti að gera power point glærur um alla flokka fugla á íslandi. Sem eru landfuglar, máffuglar, sjófuglar, spörfuglar, vaðfuglar og vatnafuglar.
Ég lærði t.d. mörg fugla ný fugla nöfn og margt fleira.
Mér fannst gaman að læra um fuglana.
Menntun og skóli | Breytt 28.5.2010 kl. 08:32 | Slóð | Facebook
23.4.2010 | 11:19
Stærðfræði hringekja
Ég hef verið í stærðfræði hringekju á föstudögum. Við gerum margar þrautir og mynstur.
Mér finnst það gaman því að mér finnst gaman að gera þrautir og það er gaman að gera eitthvað annað en að vera í stðrðfræði hópum.
Menntun og skóli | Breytt 26.5.2010 kl. 08:12 | Slóð | Facebook